Tbr Listinn
Alma og Anna Karen taka fyrir bókina Pucking Mad About You eftir elsku bestu Karen C. McDermott okkar. Þetta er bókin sem kom okkur í íshokkí gírinn áður en Heated Rivalry tók yfir líf okkar, já allra nema Önnu Karenar þó að hún hafi lofað að horfa á þættina fyrir næstu upptökur! Bókina hennar Karenar má finna á Amazon en einnig er hægt að sérpanta hana í gegnum bóksölu stúdenta ef þið viljið eiga physical eintak af henni. Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
info_outlineTbr Listinn
Alma og Fjóla setjast niður í þætti dagsins og tala um nýjasta æðið sitt. Íshokkí rómans þættina Heated Rivalry! Myndatakan, þættirnir, bækurnar, höfundurinn, leikararnir, þetta bara getur ekki orðið betra! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
info_outlineTbr Listinn
Stelpurnar koma saman og segja okkur frá nokkrum einnar stjörnu umsögnum um bækurnar sem þær hafa lesið og nokkrar sem þær ætla sér að lesa, twistið er að þær íslensku þýddu þær allar! Mikið hlegið, smá pirringur og svakalega skemmtilegar umsagnir svo þið ættuð ekki að láta þennan þátt framhjá ykkur fara! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
info_outlineTbr Listinn
Alma og Fjóla taka upp fyrsta þátt ársins. Stiklum við á ansi mörgu þennan þátt en við förum snögglega yfir þær bækur sem við lásum í jólafríinu, tölum um tölvuleikinn Split Fiction sem Alma kláraði yfir jólin og leikritið Hamlet sem þær fóru á ásamt Lilju og Þorbjörgu skvísum. Við hlökkum til frábærs lesárs með ykkur! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
info_outlineTbr Listinn
Í þættinum í dag förum við í smá hraðaspurningar og teljum upp flestar bækurnar sem við höfum lesið frá því í byrjun ágúst. Alma sá algjörlega um að búa til spurningar svo Fjóla og Anna KAren vita ekkert hvað þær eru að fara út í. Við viljum óska ykkur gleðilegrar hátíðar og frábært nýtt ár, við þökkum innilega fyrir að þið hafið verið okkur samferða á þessu frábæra bóka ári! Megum við eiga frábært bókaár framundan og getum við ekki beðið eftir að halda þessu ævintýri áfram! Bækurnar sem við nefndum...
info_outlineTbr Listinn
Alma og Anna Karen taka smá spjall um jólin og bækur. Fjóla er því miður fjarri góðu gamni en við óskum henni góðra jóla þar sem hún er stödd! Anna Karen stjórnar þessum þætti með sterkri hendi og spyr Ölmu nokkrar spurningar sem hún svo sjálf svarar líka. Gott spjall um allt tengt jólunum og eins og svo oft með þessar stöllur fer spjallið um víðan veg, kannski of víðann en samt ekki. VVið óskum öllum gleðilegrar hátíðar og þökkum fyrir alla nýja vini og öll þau tækifæri sem við höfum fengið á þessu ári. Þið...
info_outlineTbr Listinn
Fjóla sest niður með Lilju Ósk Snorradóttur í einlægu spjalli um upplifun hennar af veikindum í kjölfar höfuðáverka. En Lilja skrifaði og gaf út bókina Heimsins besti dagur í helvíti þar sem hún segir frá þessu ferli. Bókin er einlæg og hrá með persónulegri frásögn þar sem engin glansímynd er til staðar. Þessi bók á fullt erindi inn á hvert heimili og er virkilega mikilvæg til að vekja athygli á stöðu fólks sem er að takast á við veikindi sem gjörbreyta lífi einstaklinga. Við þökkum Lilju kærlega fyrir að vilja koma til okkar í spjall...
info_outlineTbr Listinn
Fjóla veik, Anna Karen þunn og Alma með rugluna. Þetta getur ekki verið nema góður þáttur! Hér förum við yfir nokkrar bækur úr jólabókaflóðinu, þær sem við erum sérstaklega spenntar fyrir eða höfum þegar lesið og elskum! (Einnig kemur Alma með eilítið skemmtiatriði, en við skulum ekkert vera að tala um það...) Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
info_outlineTbr Listinn
Alma oog Fjóla fengu til sín frábæran gest en hún Sesselía Ólafs kom til okkar til að ræða nýju og fyrstu bókina sína Silfurberg. Frábært spjall um bókina, listina og Ölmu að fangirl-a. Við mælum innilega með þessari bók í jólapakkann í ár! Þið finnið Sesselíu á þessum samnfélagsmiðlum; Tiktok; sesseliao Insta; sesseliao Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
info_outlineTbr Listinn
Í þessum þætti fær Alma til sín góða gesti, þó önnur taki virkari þátt í umræðunni. Mæðgurnar Dóra og Emma kíkja æí heimsókn og hjálpa Ölmu með þáttinn þar sem að Anna Karen og Fjóla eru fjarri góðu gamni. Tala Alma og Dóra um allskonar bóka-, og Dóru, tengda hluti og dálítið mikið um Bóksölu stúdenta, sem stendur þeim báðum nú frekar nærri! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
info_outlineStelpurnar taka fyrir bók mánaðarins en hún er engin önnur en Within These Wicked Walls eftir Lauren Blackwood.
Eins og vanalega er STÓR höskuldarviðvörun á þessum þætti minnum á að grúska í bókina áður en þið hlustið á þáttinn ef þið viljið ekki renna blint í sjóinn með okkur.
Við erum alalr frekar sammála með þessa bók en tengjum þó við hana á mismunandi hátt!
Næsta bók er svo;
Kindred eftir Octavia Butler!