Morðcastið
Góðan daginn, fimmtudaginn. Þá er komið að hörmungar sögu þessarar viku. Í dag segir Unnur okkur frá konu á besta aldri (og hundinum hennar) sem ætlaði bara að flytja til Panama með manninum sínum til að breyta til og lifa lífinu en því miður fór það alls ekki svo. Sko alls ekki, og mjög svo mikið því miður. Þátturinn er í boði: Ajax, Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Mfitness. Mál hefst: 10:17
info_outlineMorðcastið
Góðan daginn þennan rigningardaginn! Öll vitum við nú að góðar buxur eru gulli betri. En eru góðar buxur virði heillar manneskju? Í Bandaríkjunum er ung og glæsileg kona sannfærð um það og því lendum við eins og alltaf í undarlegu en um leið áhugaverðu máli. Þátturinn er í boði Ristorante, Happy Hydrate og MFitness. Mál hefst: 10:44
info_outlineMorðcastið
Góðan daginn þennan sólríka fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Frakklands, fræðir okkur um staðhætti og kynnir okkur fyrir nokkrum misgáfulegum unglingum þar sem einn tekur alveg hræðilega ákvörðun. Í raun tekur þessi umræddi unglingur alveg hræðilega margar slæmar ákvarðanir. Réttarkerfið kannski líka reyndar, og jafnvel yfirvöld í heild. Jæja, þetta er allt alveg hræðilega sorglegt eins og alltaf en á sama tíma, því miður, alveg virkilega áhugavert. Þáttur dagsins er í boði MFitness, Ristorante, Better you, Nettó, Happy...
info_outlineMorðcastið
Í dag er það Florida man sem hefur aðeins of mikla trú á sér og sinni getur sem hefur kannski, veit það ekki, mögulega, áhrif á líf og störf fólksins í kringum sig. Er dáleiðsla faggrein? Þátturinn er í boði Happy Hydrate, Nettó, Ristorante og Ajax.
info_outlineMorðcastið
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í fullkomnum heimi þá værum við öll örugg á okkar heimili með okkar fjölskyldu og vinum en mál dagsins sýnir svart á hvítu hvað þetta getur allt verið ömurlegt. Alltaf mjög áhugavert því miður en samt alveg absalút hræðilegt. Þáttur dagsins er í boði Better you, Happy Hydrate, Nettó, Ristorante og Findus. Mál hefst: 7:52
info_outlineMorðcastið
Á þessum degi verkalýðsins er viðeigandi að segja frá blómasölumanni og húsgagnasmiði sem kynntust og úr varð ein stór og góð fjölskylda. Nema auðvitað alls ekki og saga dagsins er skrítin, sorgleg og með geimveruívafi, þannig að það ætti að vera eitthvað fyrir öll. Þáttur dagsins er í boði Nettó, Ristorante, Happy Hydrate og Ajax. Mál hefst: 12:45
info_outlineMorðcastið
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins kynnumst við mörgum mjög merkilegum hliðum að einu og sama málinu, máli sem hefur ótrúlega fínan endi samt. Allavega jákvæðari en stundum, en allt er þetta auðvitað algjör hörmung. Svoleiðis. Þáttur dagsins er í boði Nettó, Better you Sjóvá, Happy Hydrate og Ristorante Mál hefst: 9:35
info_outlineMorðcastið
Í áttunda þætti Bókacastsins ræðum við um Sykur eftir Katrínu Júlíusdóttur.
info_outlineMorðcastið
Góðan daginn þennan ágæta fimmtudaginn. Það er enn einn partýsjúki unglingurinn í þætti dagsins. Hann vildi bara hafa gaman, en varð heldur betur ekki kápan úr því klæðinu. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Nettó, Better you, Happy Hydrate og Mfitness. Mál hefst: 9:40
info_outlineMorðcastið
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins langaði segir Unnur frá ungum dreng sem langaði bara á skólaball að hafa gaman, dansa mikið með vel gelað hár og rakspíra en öðrum drulluspöðum tókst að eyðileggja það og líf gríðarlega margra í kjölfarið. Mál hefst: 09:00 Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Better You, Sjóvá, Nettó og Ristorante.
info_outlineGóðan daginn, fimmtudaginn.
Þá er komið að hörmungar sögu þessarar viku.
Í dag segir Unnur okkur frá konu á besta aldri (og hundinum hennar) sem ætlaði bara að flytja til Panama með manninum sínum til að breyta til og lifa lífinu en því miður fór það alls ekki svo. Sko alls ekki, og mjög svo mikið því miður.
Þátturinn er í boði: Ajax, Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Mfitness.
Mál hefst: 10:17