loader from loading.io

#9. - Vilhjálmur Birgisson, Dagbjört Hákonardóttir og Hermann Guðmundsson

Spursmál

Release Date: 01/26/2024

#9. - Vilhjálmur Birgisson, Dagbjört Hákonardóttir og Hermann Guðmundsson show art #9. - Vilhjálmur Birgisson, Dagbjört Hákonardóttir og Hermann Guðmundsson

Spursmál

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands og Verkalýðsfélags Akraness, er aðalviðmælandi Stefáns Einars Stefánssonar í þessum níunda þætti af Spursmálum. Mikill hiti hefur færst í kjaradeilu breiðfylkingar stéttarfélaga innan ASÍ og Samtaka Atvinnulífsins (SA) en slitnað hefur upp úr viðræðum samningsaðila og var deilunni vísað til ríkissáttasemjara í vikunni. Dagbjört Hákonardóttir, þinkona Samfylkingarinnar, og Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi, fara einnig yfir helstu fréttir vikunnar undir stjórn Stefáns Einars og er svo...

info_outline
#8. - Sigurður Kári Kristjánsson, Ólöf Skaftadóttir og Björn Ingi Hrafnsson show art #8. - Sigurður Kári Kristjánsson, Ólöf Skaftadóttir og Björn Ingi Hrafnsson

Spursmál

Sigurður Kári Kristjánsson, stjórnarformaður NTÍ, situr fyrir svörum í áttunda þætti af Spursmálum. Í þættinum verður knúið á um svör við krefjandi spurningum um hlutverk náttúruhamfarasjóðsins og yfirvofandi aðgerðiráætlanir í ljósi atburðanna í Grindavík. Nístandi óvissa Grindvíkinga hefur sett mikinn svip á samfélagsumræðuna og ljóst að framtíð þeirra liggur í höndum ríkisstjórnarinnar og Náttúruhamfaratrygginga Íslands (NTÍ). Auk Sigurðar Kára mæta þau Ólöf Skaftadóttir, laxabóndi og fjölmiðlakona, og Björn Ingi...

info_outline
#7. - Willum Þór Þórsson, Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Orri Páll Jóhannsson show art #7. - Willum Þór Þórsson, Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Orri Páll Jóhannsson

Spursmál

Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, situr fyrir svörum í sjöunda þætti Spursmála undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar. Þar er staða heilbrigðiskerfisins höfð í brennidepli og knúið á um svör með hvaða hætti hægt sé að bæta ástand heilbrigðisþjónustunnar hér á landi. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, og Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður VG, takast einnig á um helstu fréttir vikunnar og létu ólíkar skoðanir sínar í ljós á áliti umboðsmanns Alþingis um ákvörðun matvælaráðherra á frestun...

info_outline
#6. - Brynjar Níelsson, Ingibjörg Isaksen, Runólfur Ágústsson og Erna Mist Yamagata show art #6. - Brynjar Níelsson, Ingibjörg Isaksen, Runólfur Ágústsson og Erna Mist Yamagata

Spursmál

Ingi­björg Isak­sen þing­flokks­formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins og Brynj­ar Ní­els­son, aðstoðarmaður dóms­málaráðherra og fyrr­um þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins eru viðmæl­end­ur Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í þessum sjötta þætti af Spursmálum. Þar takast þau á um ríkisstjórnarsamstarfið sem mörgum þykir vera að líða undir lok. Auk Ingi­bjarg­ar og Brynj­ars ræðir Stefán Einar við Run­ólf­ Ágústs­son fram­kvæmda­stjóra og Ernu Mist Yamagata, lista­konu og pistla­höf­und um helstu frétt­ir líðandi...

info_outline
#5 - Jón Gnarr, Sigurjón Kjartansson, Sigríður Mogensen og Björg Eva Er­lends­dótt­ir. show art #5 - Jón Gnarr, Sigurjón Kjartansson, Sigríður Mogensen og Björg Eva Er­lends­dótt­ir.

Spursmál

Kjarnorkuver í Búðardal og sátt um deifikerfið. Orku­mál­in eru í brenni­depli í Spurs­mál­um þar sem þær Björg Eva Er­lends­dótt­ir frá Land­vernd og Sig­ríður Mo­gensen frá Sam­tök­um iðnaðar­ins eru mætt­ar til að ræða um stöðuna sem er kom­in upp í orku­mál­um hér á landi. Þá ætla þeir Tví­höfðabræður Jón Gn­arr og Sig­ur­jón Kjart­ans­son rýna í árið sem er fram und­an.

info_outline
#4 - Simmi Vill, Gunnar Smári, Svanhildur Hólm og Þorvaldur Þórðarson. show art #4 - Simmi Vill, Gunnar Smári, Svanhildur Hólm og Þorvaldur Þórðarson.

Spursmál

Líflegar umræður sköpuðust í Spursmálum um kjara­mál og stöðuna í aðdrag­anda kjara­samn­inga þar sem þeir Gunn­ar Smári Eg­ils­son, talsmaður Sósí­al­ista, og Sig­mar Vil­hjálms­son, at­hafnamaður og formaður At­vinnu­fjelags­ins, mættu í settið til Stef­áns Ein­ars. Í aðdrag­anda kjara­samn­inga er staða kjara­mála afar viðkvæm í ljósi mik­ill­ar verðbólgu og þá hef­ur kjara­deila flug­um­ferðar­stjóra und­an­farn­ar vik­ur sett umræðuna í nýtt sam­hengi. Í vik­unni dró svo til tíðinda þegar ekki náðist...

info_outline
#3. Spursmál - Guðlaugur Þór, Dóri DNA og Ásthildur Sturludóttir show art #3. Spursmál - Guðlaugur Þór, Dóri DNA og Ásthildur Sturludóttir

Spursmál

Guðlaug­ur Þór Þórðar­son um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðherra er aðalviðmæl­andi Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í þriðja þætti af Spurs­málum. Guðlaug­ur Þór hef­ur hlotið þó nokkra gagn­rýni að und­an­förnu þar sem mörg­um þykir kom­in upp frem­ur neyðarleg staða í orku­mál­um sem ekki sér fyr­ir end­ann á hald­ist staðan óbreytt. Til umræðu í þættinum eru mál sem brunnið hafa á þjóðinni undanfarið; Breyt­ing­ar á raf­orku­lög­um, yf­ir­vof­andi orku­skort­ur í land­inu og...

info_outline
#2. Spursmál - Sólveig Anna Jónsdóttir show art #2. Spursmál - Sólveig Anna Jónsdóttir

Spursmál

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og aðgerðasinni er aðalviðmælandi Stefáns Einars Stefánssonar í öðrum þætti Spursmála. Skapaðist spennuþrungið samtal þeirra á milli um starfsemi verkalýðshreyfingarinnar og stöðu vinnumarkaðarins. Auk Sólveigar Önnu ræðir Stefán Einar við þau Áslaugu Huldu Jónsdóttur, aðstoðarmann háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Björn Brynjúlf Björnsson, hagfræðing, um það sem bar efst á góma í fréttum vikunnar með líflegum og skemmtilegum hætti.   Umsjónarmaður Spursmála er...

info_outline
#1. Spursmál - Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Kristrún Frostadóttir show art #1. Spursmál - Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Kristrún Frostadóttir

Spursmál

Um­sjón­ar­maður Spursmála er blaðamaður­inn Stefán Ein­ar Stef­áns­son sem mun stýra af­drátt­ar­lausri sam­fé­lagsum­ræðu og fá viku­lega til sín val­in­kunna viðmæl­end­ur í settið til að kryfja umræðuna og fara yfir mál­efni líðandi stund­ar. Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, fjár­mála- og efna­hags­ráðherra, og Kristrún Frosta­dótt­ir, formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sitja fyr­ir svör­um í þess­um fyrsta þætti. Auk þeirra ræðir Stefán Ein­ar við Ragn­hildi Sverr­is­dótt­ur, fyrr­um...

info_outline
Spursmál - Kynning show art Spursmál - Kynning

Spursmál

info_outline
 
More Episodes

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands og Verkalýðsfélags Akraness, er aðalviðmælandi Stefáns Einars Stefánssonar í þessum níunda þætti af Spursmálum. Mikill hiti hefur færst í kjaradeilu breiðfylkingar stéttarfélaga innan ASÍ og Samtaka Atvinnulífsins (SA) en slitnað hefur upp úr viðræðum samningsaðila og var deilunni vísað til ríkissáttasemjara í vikunni.

Dagbjört Hákonardóttir, þinkona Samfylkingarinnar, og Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi, fara einnig yfir helstu fréttir vikunnar undir stjórn Stefáns Einars og er svo sannarlega á nógu að taka í þeim efnum.