Gullkastið
Liverpool voru ekki lengi að henda öllu því jákvæða frá vikunni á undan út um gluggann á Etihad með einni linustu frammistöðu tímabilsins og er þá nú töluvert mikið sagt. Það féll sannarlega ekkert með Liverpool í þessum leik og niðurstaðan því stærsta tap Arne Slot sem stjóri Liverpool. Hann er heldur betur að slá flest sín met hvað slæma tölfræði varðar þessa dagana því miður. Hjálpaði sannarlega ekki á Etihad að öll vafaatriði og “vafaatriði” féllu með aðeins öðru liðinu en það afsakar lítið heildar frammistöðu liðsins....
info_outlineGullkastið
Allt annað að sjá Liverpool í þessari viku og tveir sannfærandi sigrar í deild og Meistaradeild. Risaverkefni á Ethiad bíður á sunnudaginn. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
info_outlineGullkastið
Klárar Slot tímabilið sem stjóri Liverpool? Spurning sem við bjuggumst ekki við að þurfa að velta upp sl. sumar. Hlutirnir eru fljótir að breytast í fótbolta og Liverpool þarf sannarlega alvöru viðsnúning og það strax. Ömurlegt tap gegn Brentford strikaði alveg út góðan sigur á Frankfurt í miðri viku. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. / / /
info_outlineGullkastið
Fjórða tapið í röð og núna óboðlegt tap á heimavelli gegn United. Slot er fyrir vikið kominn undir pressu sem enginn stjóri Liverpool hefur verið í áratug núna. Hann þarf að finna gáfulegri lausnir og liðið þarf að finna betra svar í þessari viku gegn Frankfurt og Brentford. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
info_outlineGullkastið
Liverpool tapaði þremur leikjum í röð fyrir landsleikjahlé, þar af tveimur deildarleikjum sem töpuðust á marki í uppbótartíma. Það má því léttilega færa rök fyrir því að þetta landsleikjahlé er búið að vera þrjá mánuði að líða en er nú blessunarlega að renna sitt skeið. Alvöru verkefni strax á sunnudaginn þegar Amorim mætir á Anfield með Man United. Liverpool er eitt af örfáum liðum sem ekki hefur enn unnið United undir hans stjórn og því þarf að breyta. Spáum í leik helgarinnar, gefum leikmannahópnum einkunn fyrir tímabilið so far,...
info_outlineGullkastið
Enn ein ósannfærandi spilamennskan hjá Liverpool, þriðji tapleikurinn í röð og annað skipti á rúmlega viku sem Liverpool tapar á flautumarki á útivelli í London. Hveitibrauðsdagarnir eru á enda hjá Arne Slot og stuðningsmenn réttilega farnir að spyrja þyngri spurninga en hingað til. Liverpool fer inn í landsleikjahlé með þrjá tapleiki í röð á bakinu en það sem verra er þá hefur liðið ekki ennþá spilað sannfærandi 90 mínútur í neinum leik það sem af er þessu tímabili. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum...
info_outlineGullkastið
Heldur betur þung vika hjá okkar mönnum og tveir ákaflega ósannfærandi og pirrandi tapleikir staðreynd. Annar í London sem tapaðist á flautumarki og hinn í Istanbul þar sem boltinn var í leik 50% af leiktímanum. Chelsea bíður um næstu helgi, enn einn útileikurinn. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
info_outlineGullkastið
Liverpool borg er að sjálfsögðu rauð, góður sigur á Everton í kjölfarið á sigri í miðri viku gegn Atletico Madrid. Liverpool er því með fullt hús stiga áfram en á meðan töpuðu bæði Arsenal og Man City stigum, reyndar í sama leiknum. Það var Breiðholtsþema í þættinum að þessu sinni í stjórn Magga sem fékk þá Addó og Garðar Gunnar til sín. Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: Garðar Gunnar Ásgeirsson og Arnar Þór Valsson Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
info_outlineGullkastið
Fótboltaleikur er 90 mínútur plús uppbótartími, blessunarlega! Liverpool er búið að klára fimm leiki í röð með sigurmarki á lokamínútunum. Þrír af þeim reyndar eftir að hafa hent frá sér 2-0 forystu. Tveir afar ólíkir leikir í þessari viku og alvöru stórleikur framundan um helgina. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
info_outlineGullkastið
Landsleikjahlé að renna sitt skeið og Isak mættur til æfinga klár í slaginn með toppliðinu. Tókum stöðutékk á byrjun mótsins, fréttum vikunnar og næstu umferð. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
info_outlineFréttir um Marc Guéhi til Liverpool og Leoni frá Parma fóru á yfirsnúning á meðan upptöku stóð og í morgun komu fréttir af Isak sem er heldur betur að gera sitt til að fá sín félagsskipti til Liverpool í gegn. Rosalega spennandi dagar og vikur framundan á leikmannamarkaðnum, Liverpool þarf að fylla í nokkrar stöður áður en glugganum lokar það er ljóst.
Enska deildin fer af stað á föstudagskvöldið þegar ensku meistarnir fá Bournemouth í heimsókn á Anfield. Er okkar menn klárir í slaginn? Tap á Wembley í Góðgerðarskildinum skilur eftir töluvert af spurningum um liðið en gefur jafnframt tilefni til bjartsýni einnig.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
