loader from loading.io

Gullkastið - Isak mættur

Gullkastið

Release Date: 09/01/2025

Gullkastið – Leiðtogarnir Afgreiddu Everton show art Gullkastið – Leiðtogarnir Afgreiddu Everton

Gullkastið

Trölla sigurmark fyrirliðans gegn Everton á 100.mínútu er nokkuð auðveldlega besta moment þessa tímabils og tryggði í leiðinni ákaflega  mikilvæg þrjú stig og 100% árangur Liverpool á þessum nýja heimavelli Everton. Borgin er svo sannarlega rauð eftir sem áður. Meistaradeildarsæti er því enn meira innan seilingar eftir helgina. Það er hinsvegar ekki nóg að komast í Meistaradeildina það þarf spila eins og menn þar líka, Liverpool gerði það vissulega öllu betur á Anfield heldur en í París um daginn en niðurstaðan varð sú sama, 0-2 tap og...

info_outline
Gullkastið – Er Ennþá Séns? show art Gullkastið – Er Ennþá Séns?

Gullkastið

Einvígið gegn PSG er í brennidepli og ljóst að Liverpool er í gríðarlegri brekku núna þegar einvígið er hálfnað eftir vond úrslit og enn verri frammistöðu í París. Ef það er eitt lið sögulega sem getur snúið svona stöðu þá er það að sjálfsögðu Liverpool þannig að höldum ennþá aðeins í vonina. Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er hinsvegar ennþá möguleiki eftir nokkuð góða helgi í ensku deildinni. Chelsea og Aston Villa töpuðu stigum á meðan Liverpool vann góðan sigur á Fulham. Spáum aðeins í stöðuna í deildinni almennt enda...

info_outline
Gullkastið – Allt Undir show art Gullkastið – Allt Undir

Gullkastið

Frammistaða Liverpool um helgina var í beinu framhaldi af tímabilinu í heild og því lá við að skoða hvað væri raunverulega í boði á þjálfaramarkaðnum í sumar. Hvaða nöfn eru þetta sem eru efst hjá veðbönkum og er hægt að máta þá stjóra við Liverpool? Verkefni þessarar viku ráða svo líklega úrslitum um þetta tímabil og jafnvel næsta tímabil líka. Ef að Liverpool liðið ætlar að sýna eitthvað baráttuþrek og hjarta í vetur þá þetta tímapunkturinn til að byrja. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda...

info_outline
Gullkastið – Sumarið Er Tíminn show art Gullkastið – Sumarið Er Tíminn

Gullkastið

Hvað gerir Liverpool í sumar? Það þarf að fylla fleiri stór skörð en bara það sem Mo Salah skilur eftir sig til að koma Liverpool aftur á rétta braut. Landsleikjapásunni er lokið og komið er að stórleik á útivelli í FA Cup. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:  /   / 

info_outline
Gullkastið – Salah Kveður í Sumar show art Gullkastið – Salah Kveður í Sumar

Gullkastið

Sprengja á meðan við vorum að taka upp, Egypski kóngurinn Mo Salah tilkynnti að hann ætlar að kveðja í sumar, við bregðumst við þeim fréttum þegar um 10 mínútur eru liðnar af þættinum. Brottför hans þurfum við auðvitað að gera mun betri skil þegar líður á vorið enda Salah einn af þeim allra stærstu í sögu félagsins. Hér er t.d. dæmi um þá gleði sem hann hefur gefið okkur sem kannski sést ekki á metalistanum Including Man Utd players, Mohamed Salah is the eighth-highest PL scorer at Old Trafford in the 2020s Liverpool er annars í frjálsu falli í...

info_outline
Gullkastið – Algjört þrot á Anfield show art Gullkastið – Algjört þrot á Anfield

Gullkastið

iverpool afrekaði það bara að vinna ekki þetta Tottenham lið sem kom inn í leikinn með eitt minnsta sjálfstraust sem nokkuð lið hefur verið með í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og þar að auki með 13 leikmenn fjarverandi. Þeir hlupu 9 km meira en Liverpool í þessum leik þrátt fyrir þetta og höfðu næga orku í lokin til að kvitta fyrir mark Liverpool sem auðvitað kom úr föstu leikatriði því liðið tengir varla saman venjulega sókn núorðið. Þetta var næsti deildarleikur á eftir tapinu gegn Wolves um daginn, einu versta liði í sögu ensku...

info_outline
Gullkastið – Óstöðugleikinn er stöðugleikinn show art Gullkastið – Óstöðugleikinn er stöðugleikinn

Gullkastið

Ósöðugleiki Liverpool er eini stöðugleiki liðsins. Liverpool leiðrétti hærðilegt tap gegn Wolves með 1-3 sigri á sama velli í bikarnum en tapaði svo í annað skipti í vetur 0-1 gegn Galatarsaray í Tyrklandi. Liverpool er því núna búið að tapa gegn Wolves og Galatarsaray á einni viku sem er bara alls ekkert nógu gott. Næst er það Tottenham sem hafa ekki unnið leik á þessu tímabili en voru vissulega með Liverpool í köðlunum í fyrri leiknum þrátt fyrir að vera 9 gegn 11 undir lokin. Minnum annars áfram á Árshátíð Liverpool klúbbsins í 21.mars í...

info_outline
Gullkastið – Dalglish show art Gullkastið – Dalglish

Gullkastið

Gullkastið var tekið upp í Smárabíó að þessu sinni þar sem  var með viðhafnarsýning á heimildarmynd um King Kenny Dalglish sem er 75 ára í dag. Björg Arna mætti í byrjun þáttar og kynnti einni árshátíð Liverpool klúbbsins í 21.mars í Kaplakrika sem við hvetjum alla til að tryggja sér miða á. Liverpool spilaði tvo leiki í vikunni, flottur 5-2 sigur á West Ham og allt í blóma en svo algjört skiptsbrot í gærkvöldi gegn Wolves sem var svolítið tímabilið í hnotskurn. Bikar og Meistaradeild framundan í næstu viku Stjórnandi: Einar...

info_outline
Gullkastið – Liverpool fór með öll stigin frá Skíriskógi show art Gullkastið – Liverpool fór með öll stigin frá Skíriskógi

Gullkastið

Fógetinn í Nottingham var vondi kallinn í Hróa Hetti og það á svo sannarlega líka við um vægast sagt skrautlegan fógeta Nottingham Forrest liðsins og því sérstæklega sætt að sækja öll þrjú stigin þangað á eins ógeðslegan hátt og mögulegt var. Frammistaða Liverpool var vægast sagt áhyggjuefni en tvö flautumörk dugðu til að breyta allri umfjöllun um leikinn til hins betra. Risastór þrjú stig í baráttunni um Meistaradeildarsæti sem er ekki eins dökk og fyrir nokkrum dögum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum...

info_outline
Gullkastið – Jákvæð vika show art Gullkastið – Jákvæð vika

Gullkastið

Liverpool var mun líkara liðinu sem við þekkjum í síðustu viku, tveir sigrar, ekkert mark fengið á sig og leikjaprógram framundan þar sem krafan er áframhald af þessum frammistöðum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:  /   / 

info_outline
 
More Episodes

Alexander Isak er mættur til Liverpool og var síðasta viðbótin við hópinn í sumar eftir ótrúlegan leikmannaglugga og nokkuð fáránlegan lokadag. Marc Guéhi var líka búinn með læknisskoðun og kveðjumyndbönd hjá Palace aðeins til að fá svo ekki að fara þökk sé stjóra Palace sem tapaði alveg gleðinni og hótaði að hætta.

Liverpool vann svo auðvitað frábæran sigur á flugher Arsenal, það lið ber sannarlega öll merki þess að stóri liðsins var fyrirliði Everton sem leikmaður undir stjórn David Moyes, maður lifandi. Þriðja helgin í röð sem stuðningsmenn Liverpool öskra hressilega á sjónvarpið undir lok leikja og við erum bara í þriðju umferð!

Spáðum auðvitað einnig í leikmannaglugganum í heild, drættinum í Meistaradeild Evrópu og því helsta frá þessari viku.

Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

MP3: Þáttur 533