loader from loading.io

Gullkastið – Man Utd á Anfield um helgina

Gullkastið

Release Date: 10/15/2025

Gullkastið – Salah Kveður í Sumar show art Gullkastið – Salah Kveður í Sumar

Gullkastið

Sprengja á meðan við vorum að taka upp, Egypski kóngurinn Mo Salah tilkynnti að hann ætlar að kveðja í sumar, við bregðumst við þeim fréttum þegar um 10 mínútur eru liðnar af þættinum. Brottför hans þurfum við auðvitað að gera mun betri skil þegar líður á vorið enda Salah einn af þeim allra stærstu í sögu félagsins. Hér er t.d. dæmi um þá gleði sem hann hefur gefið okkur sem kannski sést ekki á metalistanum Including Man Utd players, Mohamed Salah is the eighth-highest PL scorer at Old Trafford in the 2020s Liverpool er annars í frjálsu falli í...

info_outline
Gullkastið – Algjört þrot á Anfield show art Gullkastið – Algjört þrot á Anfield

Gullkastið

iverpool afrekaði það bara að vinna ekki þetta Tottenham lið sem kom inn í leikinn með eitt minnsta sjálfstraust sem nokkuð lið hefur verið með í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og þar að auki með 13 leikmenn fjarverandi. Þeir hlupu 9 km meira en Liverpool í þessum leik þrátt fyrir þetta og höfðu næga orku í lokin til að kvitta fyrir mark Liverpool sem auðvitað kom úr föstu leikatriði því liðið tengir varla saman venjulega sókn núorðið. Þetta var næsti deildarleikur á eftir tapinu gegn Wolves um daginn, einu versta liði í sögu ensku...

info_outline
Gullkastið – Óstöðugleikinn er stöðugleikinn show art Gullkastið – Óstöðugleikinn er stöðugleikinn

Gullkastið

Ósöðugleiki Liverpool er eini stöðugleiki liðsins. Liverpool leiðrétti hærðilegt tap gegn Wolves með 1-3 sigri á sama velli í bikarnum en tapaði svo í annað skipti í vetur 0-1 gegn Galatarsaray í Tyrklandi. Liverpool er því núna búið að tapa gegn Wolves og Galatarsaray á einni viku sem er bara alls ekkert nógu gott. Næst er það Tottenham sem hafa ekki unnið leik á þessu tímabili en voru vissulega með Liverpool í köðlunum í fyrri leiknum þrátt fyrir að vera 9 gegn 11 undir lokin. Minnum annars áfram á Árshátíð Liverpool klúbbsins í 21.mars í...

info_outline
Gullkastið – Dalglish show art Gullkastið – Dalglish

Gullkastið

Gullkastið var tekið upp í Smárabíó að þessu sinni þar sem  var með viðhafnarsýning á heimildarmynd um King Kenny Dalglish sem er 75 ára í dag. Björg Arna mætti í byrjun þáttar og kynnti einni árshátíð Liverpool klúbbsins í 21.mars í Kaplakrika sem við hvetjum alla til að tryggja sér miða á. Liverpool spilaði tvo leiki í vikunni, flottur 5-2 sigur á West Ham og allt í blóma en svo algjört skiptsbrot í gærkvöldi gegn Wolves sem var svolítið tímabilið í hnotskurn. Bikar og Meistaradeild framundan í næstu viku Stjórnandi: Einar...

info_outline
Gullkastið – Liverpool fór með öll stigin frá Skíriskógi show art Gullkastið – Liverpool fór með öll stigin frá Skíriskógi

Gullkastið

Fógetinn í Nottingham var vondi kallinn í Hróa Hetti og það á svo sannarlega líka við um vægast sagt skrautlegan fógeta Nottingham Forrest liðsins og því sérstæklega sætt að sækja öll þrjú stigin þangað á eins ógeðslegan hátt og mögulegt var. Frammistaða Liverpool var vægast sagt áhyggjuefni en tvö flautumörk dugðu til að breyta allri umfjöllun um leikinn til hins betra. Risastór þrjú stig í baráttunni um Meistaradeildarsæti sem er ekki eins dökk og fyrir nokkrum dögum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum...

info_outline
Gullkastið – Jákvæð vika show art Gullkastið – Jákvæð vika

Gullkastið

Liverpool var mun líkara liðinu sem við þekkjum í síðustu viku, tveir sigrar, ekkert mark fengið á sig og leikjaprógram framundan þar sem krafan er áframhald af þessum frammistöðum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:  /   / 

info_outline
Gullkastið – Toxic Tap show art Gullkastið – Toxic Tap

Gullkastið

Það fellur gjörsamlega ekkert með Liverpool þessa dagana og sæti í Meistaradeild á næsta ári að verða ólíklegra með hverri umferð. Hópurinn er orðin verulega þunnur í ofanálag og það lagaðist ekki fyrir leikina í þessari viku. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:  /   / 

info_outline
Gullkastið – Leikmannaglugganum Lokað show art Gullkastið – Leikmannaglugganum Lokað

Gullkastið

Tveir góðir sigrar á Anfield þar sem Liverpool skoraði samanlagt 10 mörk gegn 1. Nauðsynleg þrjú stig í deildinni og 3.sæti tryggt í Meistaradeildinni og situr Liverpool því hjá í næstu umferð. Öguverk liðið var á sínum stað og um næstu helgi mætir Man City á Anfield. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

info_outline
Gullkastið - Endurkoma til Einskis show art Gullkastið - Endurkoma til Einskis

Gullkastið

Liverpool tapaði stigum í fimmta skipti á þessu tímabili eftir að hafa fengið á sig mark í uppbótartíma. Hugarfarið virðist vera í molum hjá liðinu og gjörsamlega ekkert fellur með Liverpool í ár. Bournemouth sem hafði unnið einn leik af síðustu 14 tók öll þrjú stigin og niðurstaðan engin sigur það sem af er þessu ári og ekki var staðan beint glæsileg fyrir áramót. Hvar liggur vandinn og hvað gerir Liverpool síðustu daga þessa leikmannaglugga? Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Ingimar Þökkum að vanda samstarfsaðilum...

info_outline
Gullkastið – Eru batamerki á Liverpool liðinu? show art Gullkastið – Eru batamerki á Liverpool liðinu?

Gullkastið

Flottur sigur í Marseille í gærkvöldi og nokkuð góð staða í Meistaradeildinni fyrir lokaumferðina. Hinsvegar afleit úrslit í annars frábærri Kop.is ferð á Anfield þar sem Burnley náði í verulega pirrandi stig. Stigasöfnun í deildinni undanfarið klárlega töluvert áhyggjuefni en viss batamerki á liðinu inn á milli. Leikjaprógrammið framundan er töluvert þyngra á pappír, hentar það Liverpool? Bournemouth á útivellli er næsta verkefni seinnipartinn á laugardaginn. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda...

info_outline
 
More Episodes

Liverpool tapaði þremur leikjum í röð fyrir landsleikjahlé, þar af tveimur deildarleikjum sem töpuðust á marki í uppbótartíma. Það má því léttilega færa rök fyrir því að þetta landsleikjahlé er búið að vera þrjá mánuði að líða en er nú blessunarlega að renna sitt skeið. Alvöru verkefni strax á sunnudaginn þegar Amorim mætir á Anfield með Man United. Liverpool er eitt af örfáum liðum sem ekki hefur enn unnið United undir hans stjórn og því þarf að breyta.

Spáum í leik helgarinnar, gefum leikmannahópnum einkunn fyrir tímabilið so far, Ögurverk liðið er á sínum tíma og eins spáum víð í þeim tímamótum að FSG er búið að eiga félagið í 15 ár í dag.

Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

Gull Áfengislaus / Verdi Travel Delottie / Ögurverk ehf