Einmitt
Í þessum þætti af Einmitt Special – Menn ræða Baldur og Einar við heilsufrumkvöðulinn Inga Torfa Sverrisson. Hvað gerist með testósterón á miðjum aldri? Erum við að vanmeta kalóríur? Við ræðum einnig nýja íslenska heilsuappið LifeTrack, sem Ingi og Linda Rakel Jónsdóttir hafa þróað fyrir íslenskan markað – einfalt verkfæri með yfir 9.000 íslenskum matvörum. Þetta er þáttur fyrir karlmenn sem vilja skilja líkama sinn – ekki berjast við hann.
info_outlineEinmitt
Í þessum þætti fara Baldur og Einar yfir tíu heitar vangaveltur um klæðaburð fullorðinna karlmanna. Skinny jeans eftir fertugt, cargo buxur og hvort strikaskór gangi við jakkaföt allt út frá þeirra mati. En umræðan er miklu dýpri. Þeir ræða muninn á því að klæða sig yngri – og að klæða sig betur og hvers vegna fullorðinn stíll á að vera meðvitaður, ekki stressaður. Þetta er þáttur fyrir alla sem hafa einhvern tímann staðið fyrir framan fataskápinn og hugsað: „Er þetta enn að virka?“
info_outlineEinmitt
Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri Krísuvíkursamtökin, hefur haft afgerandi áhrif á þróun og eflingu starfsseminnar frá því hann tók við starfinu. Undir hans stjórn hefur verið lögð rík áhersla á fagmennsku, skýra framtíðarsýn og mannúðlega nálgun sem hefur styrkt innra starf samtakanna og aukið traust út á við. Elías er gestur í nýjasta þætti af Einmitt Hlaðavarp, þar sem hann ræðir sitt hlutverk sitt og vegferð Krísuvíkursamtakanna. Að auki standa Krísuvíkursamtökin fyrir árlegri fjáröflun í þessari viku undir yfirskriftinni...
info_outlineEinmitt
Egill Ploder er nýkominn heim úr hárígræðslu frá Tyrklandi. Hann naut aðstoðar Baldurs og Einars í ferlinu og nú fara þeir yfir þetta allt saman eftir aðgerð og hvernig kollurinn á Agli er að koma undan verkefninu. Er þetta nú allt þess virði?
info_outlineEinmitt
Í þessum þætti ræða Baldur og Einar um næturkrem fyrir karla, andlitsvax, saursýnatöku, tyrkenska klippingar og þegar Baldur sá Maradona ekki skora í Argentínu 2009. Hér er eitthvað fyrir alla sem hafa gaman tilvistarkreppu miðaldra karla í Garðabæ.
info_outlineEinmitt
Einar Bárðar og Baldur Rafn spjalla við Egill Ploder en Egill var á leiðinni til Istanbul þegar þátturinn var tekinn upp og var að gera sig kláran í hártilfærsluaðgerð með aðstoð þeirra félaga. Spurningarnar eru margar og svörin bæði gagnleg og sprenghlægileg í sumum tilfellum því ekki má tapa gleðinni þó menn hafi tapað hárinu. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: - Morgunmatur meistarans - Hamraborg Nýbílavegi Austurvegi Selfossi
info_outlineEinmitt
Einar Bárðar og Baldur Rafn ræða lífið eftir hárígræðslu og hvernig það er þegar ókunnir strjúka hárið á þeim í kjötborðinu í Krónunni. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: - Morgunmatur meistarans - Hamraborg Nýbílavegi Austurvegi Selfossi
info_outlineEinmitt
Maður ársins 2025 á langflestum miðlum landsins er Guðmundur Fylkisson lögreglumaður. Maðurinn sem leitar að börnunum sem vilja ekki láta finna sig. Hann er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum ferilinn frá snjóflóðunum að vestan að leitarverkefnum dagsins í dag.
info_outlineEinmitt
Gestur minn í þessum þætti er Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Þeir eru fáir í hans starfi sem hafa ennst jafn lengi í starfi og ekki hafa verkefnin verið auðveld, hvorki í vinnunni eða í hans persónulega lífi. Kjartan ræðir ferilinn af einlægni og veikindin sem hann glímir við af æðruleysi.
info_outlineEinmitt
Biskup Íslands Guðrún Karls Helgudóttir er gesturinn minn í þessum þætti. Það eru jól þegar hann kemur í loftið og við ræðum kirkuna og trúna og upprisu trúarinnar.
info_outlineEinar Bárðar og Baldur Rafn ræða lífið eftir hárígræðslu og hvernig það er þegar ókunnir strjúka hárið á þeim í kjötborðinu í Krónunni.
Aðalbakhjarlar Einmitt eru:
hertzlangtimaleiga.is
kolski.is
scavolini.is
Bpro.is
Sterero.is
Samstarfsaðilar Einmitt eru:
biobu.is - Morgunmatur meistarans
egc.is - Hamraborg
mammaveitbest.is
fylgifiskar.is Nýbílavegi
kjotburid.is Austurvegi Selfossi
pureshilajit.is