Verum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ
Ásgeir er skotíþróttamaður sem sérhæfir sig í loftskammbyssu og frískammbyssu.
info_outline Verum hraust #9 - Guðbjörg Jóna BjarnadóttirVerum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir hefur verið lykilmanneskja í landsliði Íslands um árabil þrátt fyrir ungan aldur. Guðbjörg Jóna er Ólympíumeistari ungmenna í 200m hlaupi, en þeim merka áfanga náði hún árið 2018 í Argentínu og er hún eini Íslendingurinn sem á gull frá Ólympíuleikum ungmenna.
info_outline Verum hraust #8 - Valgarð ReinhardssonVerum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ
Kristín Birna Ólafsdóttir heyrir í Valgarði Reinhardssyni afreksmanni í fimleikum og spyr hann út í ferilinn.
info_outline Verum hraust #7 - Ólafía Þórunn KristinsdóttirVerum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ
Ragna Ingólfsdóttir heyrir í Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur atvinnukylfingi og spyr hana út í ferilinn.
info_outline Verum hraust #6 - Karen KnútsdóttirVerum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ
Kristín Birna Ólafsdóttir spjallar við Kareni Knútsdóttur handknattleikskonu um ferilinn, æfingar hérlendis sem og erlendis og ýmislegt annað skemmtilegt.
info_outline Verum hraust #5 - Guðni Valur GuðnasonVerum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ
Kristín Birna Ólafsdóttir heyrir í Guðna Val Guðnasyni Ólympíufara og Íslandsmethafa í kringlukasti og spyr hann út í ferilinn.
info_outline Verum hraust #4 - Júlían J. K. JóhannssonVerum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ
Ragna Ingólfsdóttir heyrir í Júlían J. K. Jóhannssyni stigahæsta kraftlyftingamanni Íslandssögunnar og spyr hann út í ferilinn.
info_outline Verum hraust #3 - Brynjar GunnarssonVerum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ
Kristín Birna Ólafsdóttir-Johnson heyrir í Brynjari Gunnarssyni frjálsíþróttaþjálfara og spyr hann út í lífið og tilveruna.
info_outline Verum hraust #2 - Guðlaug Edda HannesdóttirVerum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ
Ragna Ingólfsdóttir heyrir í Guðlaugu Eddu Hannesdóttur þríþrautarkonu og spyr hana út í lífið sem afreksíþróttakona.
info_outline Verum hraust #1 - Anton Sveinn McKeeVerum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ
Ragna Ingólfsdóttir heyrir í Antoni Sveini McKee sundmanni og spyr hann út í lífið sem atvinnumaður í sundi.
info_outlineBrynjar Gunnarsson, afreksþjálfari í frjálsíþróttum, hefur staðið sig frábærlega í þjálfarastarfinu á undanförnum árum þrátt fyrir ungan aldur og erfiðan sjúkdóm sem hefur tekið sinn toll.
Brynjar hefur verið þjálfari í yfir áratug og séð um umsjónaþjálfun yngri flokka hjá Íþróttafélagi Reykjavíkur um árabil. Undanfarin ár hefur hann einnig fært sig yfir í afreksþjálfun en hann þjálfar m.a. íþróttafólk eins og Guðbjörgu Jónu Bjarnadóttur, Ólympíumeistara ungmenna og Evrópumeistara ungmenna í spretthlaupum, Tíönu Ósk Whitworth og Jóhann Björn Sigurbjörnsson sem bæði eru meðal bestu spretthlaupara landsins, ásamt mörgu öðru flottu íþróttafólki.
Í viðtalinu, sem er tekið af Kristínu Birnu Ólafsdóttur, talar Brynjar um þjálfarastarfið, lífið, ferilinn og sjúkdóminn.