Gullkastið
Fréttir um Marc Guéhi til Liverpool og Leoni frá Parma fóru á yfirsnúning á meðan upptöku stóð og í morgun komu fréttir af Isak sem er heldur betur að gera sitt til að fá sín félagsskipti til Liverpool í gegn. Rosalega spennandi dagar og vikur framundan á leikmannamarkaðnum, Liverpool þarf að fylla í nokkrar stöður áður en glugganum lokar það er ljóst. Enska deildin fer af stað á föstudagskvöldið þegar ensku meistarnir fá Bournemouth í heimsókn á Anfield. Er okkar menn klárir í slaginn? Tap á Wembley í Góðgerðarskildinum skilur eftir töluvert af...
info_outlineGullkastið
Alexander Isak er ennþá leikmaður Newcastle aðallega vegna þess að þeim gengur ekki nokkurn skapaðan hlut að kaupa arftaka fyrir hanna eða bara nokkrun skapaðan hlut. Liverpool spilaði tvo leiki saman daginn og vann báða með fullt af spennadi atvikum og æfingaleikirnir fara upp um eitt level um helgina þegar Liverpool mætir Palace í Góðgerðarskildinum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
info_outlineGullkastið
Slúður um Alexander Isak til Liverpool er orðið mikið meira en bara reykur, þetta er orðið að björtu báli og jafnvel talað um að hann sé farinn í verkfall hjá Newcastle til að pressa á sölu til Liverpool núna í sumar. Spáum í þeirri viðbót ef af verður og öðru slúrði tendu Liverpool í vikunni. Luis Diaz virðist t.a.m. vera farin til Bayern. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
info_outlineGullkastið
Silly season er farið aftur af stað með látum eftir afar þunga viku og alvöru bombur tengdar Liverpool, Alexander Isak var sterklega orðaður við Liverpool af blaðamönnum eins og David Ornstein sem gefur til kynna að þar sé einhver reykur. Minna áreiðanlegir miðlar tala um Rodrygo líka frá Real Madríd auk þess sem Liverpool á eftir að selja nokkrar stórar kanónur líka, eða hvað? Það hefur aldrei verið eins rosalegt að fylgjast með leikmannaglugga Liverpool. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda...
info_outlineGullkastið
Fráfall Diogo Jota og André bróður hans er auðvitað ofsalegt áfall fyrir alla tengda Liverpool og knattspyrnuheiminn í heild. Þessi vika átti að vera spennandi þar sem nýir leikmenn mæta til æfinga í fyrsta skipti ásamt öllum hópnum en byrjaði á jarðarför Diogo Jota í Portúgal. Erfitt í raun að ná utan um þennan harmleik. Hvaða áhrif hefur þetta á Liverpool og hvernig bregst félagið við? Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
info_outlineGullkastið
Kerkez er kominn til Liverpool og því búið að staðfesta alla sem voru líklegastir til að koma núna strax í júní. Þá eru leikmannasölur líklega næstar á dagskrá og líklegt að þar verði ekki minna að gera hjá okkar mönnum. Skoðum líka stöðuna á leikmannamarkaðnum hjá hinum stórliðunum. Minnum svo á að Verdi Travel er komið með ferðir á Anfield í sölu fyrir næsta tímabil Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
info_outlineGullkastið
Frá því að FSG keypti Liverpool hefur leikmannaglugginn aldrei farið eins spennandi af stað og núna. Það er búið að staðfesta kaup á Frimpong frá Leverkusen, eins er svo gott sem búið að staðfesta kaupin á besta vini hans og dýrasta leikmanni í sögu Liverpool, Florian Wirtz. Besta leikmanni þýsku deildarinnar undanfarin tvö tímabil. Ungverjinn Milos Kerkez hefur svo hamast við það sjálfur að staðfesta komu sína til Liverpool þó félagið hafi ekkert staðest með það ennþá. Miðað við slúðrið er þetta bara byrjunin og einnig er orðað helminginn...
info_outlineGullkastið
Tímabilið 2024-25 er búið og bara gat ekki farið mikið betur fyrir Liverpool, létt uppgör á því. Sigurhátíð um helgina og almenn gleði þar til eitt fífl setti stóran svartan skugga á hátíðarhöldin. Leikmannaglugginn opnar eftir helgi og Liverpool virðist heldur betur ætla að vera með og gera stórar breytingar á hópnum fyrir næsta tímabil. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
info_outlineGullkastið
Þvílíka snilldar tímabilið sem þetta er að verða, Liverpool eru Englandsmeistarar og lyfta bikarnum á loft um helgina á meðan lið eins og Arsenal, Man City og Man Utd fara öll titlalaus í gegnum mótið. Leikmannaglugginn virðist heldur betur ætla að verða fjörugri í sumar en hann var síðasta sumar og mjög spennandi nöfn orðuð við Liverpool, jafnvel strax í næstu viku. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
info_outlineGullkastið
Seint mætti Gullkastið þessa vikuna, sem er til marks um ákveðinn slaka í hugum okkar, enda Englandsmeistarar. Við fórum yfir töluvert af safaríku slúðri sem fjallað hefur um okkar menn undanfarið, veltum fyrir okkur fílupúkanum Arteta og hans stöðu hjá Arsenal. Skoðuðum stöðuna í Meistaradeildarbaráttunni, völdum framherja í Ögurverksliðið og skoðuðum síðasta útileik vetrarins í EPL, viljum klára tímabilið með reisn auðvitað. Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að...
info_outlineBilið breikkaði um tvö stig í viðbót í deildinni og staðan orðin vægast sagt góð. Seinni leikurinn gegn PSG er næst á dagskrá og Wembley um helgina. Liverpool spilar bara stórleiki.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi