loader from loading.io

GULLKASTIÐ – LIVERPOOL ENGLANDSMEISTARAR

Gullkastið

Release Date: 04/27/2025

GULLKASTIÐ – LIVERPOOL ENGLANDSMEISTARAR show art GULLKASTIÐ – LIVERPOOL ENGLANDSMEISTARAR

Gullkastið

Það er komið (Staðfest) á Englandsmeistaratitilinn og tilfinningin er vægast sagt frábær. Meistarar á Anfield og samt eru fjórar umferðir eftir. Liverpool hafa einfaldlega verið langbestir í vetur sama hvað hávær hópur stuðningsmanna annarra liða hefur grenjað.  Loksins fá leikmenn og stuðningsmenn að fagna almennilega saman og líklega er veislan bara rétt að byrja. Stöðutaflan í deildinni er eins og listaverk sem rétt væri að ramma inn og hengja upp á vegg.  Njótum kæru vinir og til hamingju með titilinn. Þessi er eins sætur og þeir verða....

info_outline
Gullkastið – Eitt Stig! show art Gullkastið – Eitt Stig!

Gullkastið

Liverpool er með 89 stig eftir sigur gegn Leicester um helgina, Arsenal getur max náði 79 stigum á þessu tímabili vinni þeir alla leikina sem þeir eiga eftir og markatalan er 10 mörkum Liverpool í vil með leik til góða. Án þess að segja (Staðfest) er óhætt að fullyrða að staðan hefur sjaldan eða aldrei verið betri. Jafntefli Arsenal gegn Palace gerir það að verkum að Liverpool geta klárað fótbolta.net (Staðfest) svigann núna á sunnudaginn í heimaleik á Anfield gegn helstu erkifjendum Arsenal í Tottenham. Það er auðvitað ekkert í hendi en maður getur...

info_outline
Gullkastið – Endamarkið Nálgast show art Gullkastið – Endamarkið Nálgast

Gullkastið

Það er ennþá styttra í fyrirheitna landið eftir leiki vikunnar. Liverpool náði í þrjú stig á Anfield á meðan Arsenal tapaði stigum. Sex stig duga því til að vinna deildina þannig að tölfræðilega gæti einmitt það gerst núna um helgina. Liverpool mætir Leicester en Arsenal fær Ipswich í heimsókn þannig að við höldum ekkert niðri í okkur andanum. Veljum í Ögurverk liðið og skoðum stöðuna í deildinni almennt og spáum í leiknum á Páskadag Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum...

info_outline
Gullkastið – Salah og Van Dijk að semja? show art Gullkastið – Salah og Van Dijk að semja?

Gullkastið

Annað tap tímabilsins í deildinni um síðustu helgi og löng vika fram að næsta leik fyrir vikið. Góðar fréttir af Salah og Van Dijk Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

info_outline
Gullkastið – Liverpool Borg Er Rauð show art Gullkastið – Liverpool Borg Er Rauð

Gullkastið

Liverpool borg er og hefur alltaf verið rauð, sigur á David Moyes og Everton var aðalatriði í leik sem tók vel á þolrifin og þökk sé því hvernig hann var dæmdur. Tólf stig þarf úr átta síðustu leikjunum til að klára titilinn. Hlóðum í nýtt Ögurverk lið og spáðum í spilin fyrir leikinn gegn Fulham um helgina og leikjaprógrammið í þessum mánuði. Allir leikir Liverpool sem eftir lifa tímabilsins verða á sunnudegi. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur...

info_outline
Gullkastið – Hvað gerir Liverpool á leikmannamarkaðnum? show art Gullkastið – Hvað gerir Liverpool á leikmannamarkaðnum?

Gullkastið

Allar helstu fréttir vikunnar benda til að Trent sé við það að skrifa undir hjá Real Madríd og fari þangað á frjálsri sölu. Afskaplega leiðinlegur viðskilnaður hjá uppöldum leikmanni og lykilmanni í algjöru toppliði. Óháð framtíð Trent er ljóst að Liverpool þarf að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum í sumar og tókum við púlsinn á því hvaða leikmenn eru líklegir til að fara og hvað er í boði í staðin í hverri stöðu. Ögurverk liðið er á sínum stað og þrenna að þessu sinni. Deildin fer svo aftur af stað í næstu viku og spilar...

info_outline
Gullkastið - Allur fókus á deildina show art Gullkastið - Allur fókus á deildina

Gullkastið

Arne Slot valdi hreint afleita viku til að tapa tveimur leikjum í röð í fyrsta skipti á ferlinum. Liverpool lauk leik í 16-liða úrslitum þrátt fyrir að hafa toppað deildarfyrirkomulagið í Meistaradeildinn og tapaði svo með afar þreyttum og ósannfærandi hætti gegn Newcastle Wembley, versta frammistaða Liverpool þar síðan 1988. Alls ekki gott og ágætt að fá bæði landsleikjahlé og bikarhelgi í kjölfarið á því. Nú fer allur fókus á þessa níu leiki sem eru eftir af þessu tímabili. Sigur í fimm þeirra og það er hægt að jafna sig á þessari viku....

info_outline
Gullkastið - PSG og Anfield South show art Gullkastið - PSG og Anfield South

Gullkastið

Bilið breikkaði um tvö stig í viðbót í deildinni og staðan orðin vægast sagt góð. Seinni leikurinn gegn PSG er næst á dagskrá og Wembley um helgina. Liverpool spilar bara stórleiki. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi  

info_outline
Gullkastið – Farið Að Sjást í Endamarkið show art Gullkastið – Farið Að Sjást í Endamarkið

Gullkastið

Forskotið á toppnum er komið í 13 stig og heldur betur farið að sjást í endamarkið. Þrátt fyrir bókstaflega allan katalóginn af afsökunum frá Arsenal mönnum hafa þeir í raun aldrei komist almennilega í titilbaráttuna og eru með stigasöfnun sem jafnan er meira á pari við liðin í baráttu um Meistaradeildarsæti. Liverpool á Southampton næst á Anfield og er sá leikur á undan leik Arsenal gegn United úti um helgina. Deildin verður hinsvegar í aukahlutverki í þessum mánuði fyrir utan leikinn gegn botnliðinu, PSG einvígið byrjar á miðvikudaginn í París...

info_outline
Gullkastið - Sex stiga helgi show art Gullkastið - Sex stiga helgi

Gullkastið

Síðasta helgi var líklega besta helgi tímabilsins fyrir Liverpool þegar Man City var loksins lagt á Etihad í deildarleik og það í kjölfarið á tapi Arsenal á Emirates vellinum. Ekki alltaf sem úrslitin á þessum olíuvöllum falla svona með okkur. Það var dregið í Meistaradeildinni, hörku vendingar í deildinni, Everton og Man Utd eru m.a. bara þremur stigum á eftir Liverpool, sko samanlagt. Næst er það svo hið heita/kalda Newcastle lið, generalprufa fyrir úrslitaleikinn í deildarbikarnum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi...

info_outline
 
More Episodes

Það er komið (Staðfest) á Englandsmeistaratitilinn og tilfinningin er vægast sagt frábær. Meistarar á Anfield og samt eru fjórar umferðir eftir. Liverpool hafa einfaldlega verið langbestir í vetur sama hvað hávær hópur stuðningsmanna annarra liða hefur grenjað.  Loksins fá leikmenn og stuðningsmenn að fagna almennilega saman og líklega er veislan bara rétt að byrja. Stöðutaflan í deildinni er eins og listaverk sem rétt væri að ramma inn og hengja upp á vegg. 

Njótum kæru vinir og til hamingju með titilinn. Þessi er eins sætur og þeir verða.

Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi, Einar Örn og Sveinn Waage