Sölvi Áskriftarþættir
Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður sem hefur víða komið við og hikstar ekki við að tjá skoðanir sínar umbúðalaust. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, rétttrúnað, samsæriskenningar, hugvíkkandi efni, sátt, kærleika og margt margt fleira.
info_outlineSölvi Áskriftarþættir
info_outlineSölvi Áskriftarþættir
Brynjar Níelsson hefur lengi verið þekktur fyrir að þora að viðra skoðanir sem fæstir þora að tjá og hefur oft bakað sér óvinsældir fyrir vikið. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um hugrekki, þor, hve mikil umsvif ríkisins eigi að vera, mikilvægi þess að kjósendur viti hvar þeir hafi þá sem þeir kjósa til valda og margt margt fleira.
info_outlineSölvi Áskriftarþættir
Brynjar Karl Sigurðsson er án vafa umdeildasti þjálfari Íslands. Hann hefur undanfarin ár þjálfað ungar stúlkur í körfubolta, sem spila nú með íþróttafélaginu Aþenu. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um skapgerð, hugrekki, samfélagið, þjálfun og margt margt fleira.
info_outlineSölvi Áskriftarþættir
Frosti Logason er þrautreyndur fjölmiðlamaður sem nýverið stofnaði fjölmiðilinn Brotkast. Frosti er þekktur fyrir að segja það sem hann hugsar og fjalla um mál sem margir leggja ekki í. Í þættinum ræða Frosti og Sölvi um stöðu fjölmiðla í heiminum, ritskoðun, matrix-ið og samsæriskenningar, stöðuna í íslensku samfélagi og margt fleira.
info_outlineSölvi Áskriftarþættir
Egill Ólafsson er löngu orðin goðsögn í íslensku menningarlífi. Hann á að baki magnaðan feril sem spannar áratugi í bæði tónlist og leiklist. Egill greindist nýverið með Parkinson sjúkdóminn og ákvað strax að tala um þá baráttu opinberlega. Í þættinum fara Sölvi og Egill yfir feril Egils, baráttuna við Parkinson, íslenskt samfélag, leiðir til að finna þakklæti og hamingju og margt margt fleira.
info_outlineSölvi Áskriftarþættir
Logi Pedro Stefánsson er tónlistarmaður sem skaust hratt upp á stjörnuhimininn og hefur verið í sviðsljósinu síðan hann var mjög ungur. Í þættinum ræða Sölvi og Logi um uppreisnareðli, listir og sköpun, sjálfsábyrgð, pólariseringu í samfélaginu og margt margt fleira.
info_outlineSölvi Áskriftarþættir
Kristján Þór Gunnarsson er læknir sem er óhræddur við að ræða um mikilvæg mál. Í þættinum ræða Sölvi og Kristján um heilsu, lækningar, samfélagssjúkdóma, faraldur heilsuleysis í tengslum við breytingar á lífsstíl og margt fleira.
info_outlineSölvi Áskriftarþættir
Baltasar Kormákur er farsælasti leikstjóri Íslandssögunnar. Hann braut sér leið inn í Hollywood, þar sem hann hefur leikstýrt fjölmörgum myndum og samhliða opnað tækifæri fyrir marga Íslendinga í kvikmyndabransanum. Í þættinum ræða Sölvi og Baltasar um magnaða sögu þessa merkilega manns, viðskipti, hugrekki, sýn á framtíðina, sjálfsvinnu og margt margt fleira.
info_outlineSölvi Áskriftarþættir
Júlía Óttarsdóttir er mögnuð ung kona sem hefur verið óhrædd við að fara sínar eigin leiðir í lífinu. 19 ára gömul sneri hún baki við djamminu, flutti úr landi og skipti gjörsamlega um takt í lífinu. Í þættinum ræða Sölvi og Júlía um andlega vakningu, heilsu, sjálfsábyrgð, náttúruna og landið okkar og margt fleira.
info_outlineJúlía Óttarsdóttir er mögnuð ung kona sem hefur verið óhrædd við að fara sínar eigin leiðir í lífinu. 19 ára gömul sneri hún baki við djamminu, flutti úr landi og skipti gjörsamlega um takt í lífinu. Í þættinum ræða Sölvi og Júlía um andlega vakningu, heilsu, sjálfsábyrgð, náttúruna og landið okkar og margt fleira.